Spáð er norðan og norðaustan 10 til 18 metrum á sekúndu, en hvassara á stöku stað í vindstrengjum við fjöll.
Slydda eða snjókoma verður með köflum á norðanverðu landinu, en þurrt syðra. Hiti verður í kringum frostmark.
Á morgun verða él eða snjókoma norðan- og austanlands, en áfram þurrt sunnan heiða, frost 0 til 6 stig.