Bólusetningardagatal stjórnvalda birt

Bólusetningardagatal hefur verið gefið út og samkvæmt því verður þjóðin …
Bólusetningardagatal hefur verið gefið út og samkvæmt því verður þjóðin bólusett fyrir lok júní. mbl.is/Kristinn Magnússon

Heilbrigðisráðuneytið hefur í samvinnu við sóttvarnalækni nú útbúið bólusetningardagatal vegna Covid-19 miðað við fyrirliggjandi upplýsingar um afhendingu bóluefna og áætlanir þar að lútandi.

Gangi forsendur eftir lýkur bólusetningu gegn Covid-19 hér á landi fyrir lok júní næstkomandi.

Dagatalið er birt með fyrirvara enda um að ræða áætlun sem getur tekið breytingum. Fyrir liggur áætlun um afhendingu á bóluefnum Pfizer, AstraZeneca og Moderna til loka mars en einnig liggur fyrir að þessir framleiðendur áforma að hafa fyrir lok júní afhent bóluefni fyrir samtals 190.000 einstaklinga.

Stór hluti dagatalsins er byggður á spá um hve mikið framleiðendur áætla að geta afhent á öðrum ársfjórðungi en dagatalið verður uppfært eftir því sem bólusetningunni vindur fram.

Á grundvelli Evrópusamstarfs hefur Ísland gert samninga um kaup á Curavac og Janssen til viðbótar þeim þremur efnum sem þegar eru komin með markaðsleyfi. Þá er Evrópusambandið að ljúka samningi um bóluefni Novavax sem Ísland fær hlutdeild í en öll þessi lyf eru komin í áfangamat hjá Evrópsku lyfjastofnuninni og þess vænst að þau fái markaðsleyfi innan tíðar, að því er fram kemur í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Segir þar einnig að í samningum um þessi bóluefni komi fram hve mikið framleiðendur þeirra áætla að geta afhent á öðrum ársfjórðungi, þ.e. fyrir lok júní. Bólusetningardagatalið tekur mið af þessum upplýsingum en gögn hvað þetta varðar eru birt með fyrirvara um að markaðsleyfi liggi ekki fyrir og staðfestar afhendingaráætlanir ekki heldur. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert