Semja þyrfti við fyrirtæki talmeinafræðinga

Sjúkratryggingar Íslands.
Sjúkratryggingar Íslands. mbl.is/Sigurður Bogi

Til þess hægt sé að fella burtu kröfu um tveggja ára starfsreynslu talmeinafræðinga án þess að það leiði til framúrkeyrslu fjárveitinga þyrfti að semja við fyrirtæki talmeinafræðinga en ekki einstaka veitendur um umfang þjónustunnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ), sem vinna nú að því að koma á samningum við sjúkraþjálfara og talmeinafræðinga.

Í tilkynningunni er bent á að fram hafi komið í umfjöllun um viðræður SÍ við talmeinafræðinga að í núverandi samningi þessara aðila sé gerð krafa um tveggja ára starfsreynslu.

„Ákvæðið, sem var sett inn að tillögu talmeinafræðinga á sínum tíma, er nú eitt af því sem þeir leggja áherslu á að falli brott í nýjum samningi. SÍ telja vel koma til greina að endurskoða ákvæðið en benda á að það myndi líklega leiða til þess að kostnaður vegna þjónustu talmeinafræðinga fari fram úr þeim fjárveitingum sem Alþingi hefur ákveðið,“ segir í tilkynningunni.

„Að mati SÍ er hægt að fella burt kröfuna um tveggja ára starfsreynslu talmeinafræðinga án þess að það leiði til framúrkeyrslu fjárveitinga. Til þess að svo mætti verða þyrfti að semja við fyrirtæki talmeinafræðinga, en ekki einstaka veitendur, um umfang þjónustunnar.“

Slíkt yrði breyting frá því sem verið hefur þar sem eldri samningar um þjónustu talmeinafræðinga (og t.d. sérgreinalækna og sjúkraþjálfara) hafi verið án takmarkana á umfangi þeirrar þjónustu sem veitt er. Því hafi kostnaður vegna þeirra iðulega farið fram úr fjárlögum, sem hafi verið harðlega gagnrýnt m.a. af Ríkisendurskoðun.

„Sjúkratryggingar Íslands binda vonir við að samningar við talmeinafræðinga náist sem fyrst til að hægt sé að byrja að starfa samkvæmt nýjum viðmiðum um veitingu þessarar mikilvægu þjónustu,“ segir í tilkynningunni.

Ríkur vilji til að semja við sjúkraþjálfara

Viðræður standa einnig yfir við sjúkraþjálfara. Stjórnvöld vilja hverfa frá heildarsamningi við hagsmunafélag viðkomandi stétta og semja um þjónustuna beint við fyrirtæki sjúkraþjálfara um að veita fyrirfram ákveðið magn þjónustu.

„Sjúkraþjálfarar eru mikilvæg heilbrigðisstétt og það er ríkur vilji til að ljúka samningi við þá og eiga nánara samstarf um þróun þeirrar heilbrigðisþjónustu sem þeir geta veitt. Markmið SÍ er að kostnaður ríkisins af þjónustu sjúkraþjálfara sé innan þeirra marka sem fjárlög hvers árs segja til um. Þá er einnig unnið að því að samningarnir tryggi betur forgangsröðun þjónustu við þá notendur sem mesta þörf hafa. Í eldri samningum voru þessi markmið ekki skilgreind nægilega vel,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að sjúkraþjálfarar hafi mótmælt því að þessi stefnumörkun og lagaskylda endurspeglist í ákvæðum nýs samnings og leitaði Félag sjúkraþjálfara til heilbrigðisráðuneytisins með það erindi. Ráðuneytið vísaði hins vegar kröfugerð þeirra á bug og minnti jafnframt á þá lögboðnu skyldu allra veitenda heilbrigðisþjónustu til að semja við SÍ óski þeir eftir kostnaðarþátttöku hins opinbera í þeirri þjónustu sem þeir veita.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert