Strekkingur fyrir norðan

Kort/Veðurstofa Íslands

Suðvestanátt í dag, víða talsverður strekkingur norðan til á landinu, annars mun hægari. Léttskýjað um landið austanvert en dálítil él fram eftir degi vestanlands. Hiti 0 til 6 stig.

Fremur hæg suðlæg átt á morgun og dálítil rigning eða slydda, en þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Snýst i vaxandi norðaustanátt með slyddu eða snjókomu norðan heiða um kvöldið.

Á miðvikudag er útlit fyrir suðaustankalda með lítils háttar rigningu eða slyddu áfram sunnan- og vestanlands en þurrki og vægu frosti á Norðaustur- og Austurlandi.

Veðurhorfur í dag og næstu daga

Suðvestan 8-15 m/s í dag, en hægari S-lands. Léttskýjað á A-verðu landinu, annars skýjað og dálítil él fram eftir degi. Hiti 0 til 6 stig. Frystir allvíða á NA- og A-landi í kvöld.

Suðaustan 3-8 og dálítil rigning eða slydda á morgun, en þurrt NA- og A-lands. Hiti 0 til 6 stig. Vaxandi norðaustanátt og slydda eða snjókoma norðan til á landinu um kvöldið.

Á þriðjudag:

Suðaustan 3-8, skýjað og dálítil rigning eða slydda S- og V-lands. Hiti 0 til 6 stig. Norðaustlægari um kvöldið með slyddu eða snjókomu norðan til á landinu.

Á miðvikudag:
Austan og suðaustan 5-13, lítils háttar rigning eða slydda og hiti 0 til 5 stig. Þurrt á NA- og A-landi, bjart með köflum og vægt frost.

Á fimmtudag og föstudag:
Suðlæg átt, skýjað og yfirleitt þurrt. Hiti 0 til 6 stig að deginum. Léttir víða til N- og A-lands á föstudag.

Á laugardag og sunnudag:
Sunnanátt og dálítil væta öðru hverju, en þurrt á N- og A-landi. Hiti breytist lítið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert