„Algjörlega óviðunandi“

Salvör Nordal, umboðsmaður barna.
Salvör Nordal, umboðsmaður barna. mbl.is/Hari

Að mati umboðsmanns barna, Salvarar Nordal, er algörlega óviðunandi að ítrekað séu lögð fyrir samræmd próf í prófakerfi sem af skipuleggjendum er metið „algjörlega ófullnægjandi“ eins og reynslan hefur sýnt.

Frestun prófa felur í sér aukið álag fyrir nemendur sem margir hafa undirbúið sig fyrir töku prófanna í lengri tíma og því er nauðsynlegt að menntamálaráðuneytið taki tafarlaust af skarið og annaðhvort tryggi fullnægjandi prófakerfi eða felli alfarið niður samræmd próf.

Þetta kemur fram á vef umboðsmanns barna í gær en í samræmdu könnunarprófi í íslensku sem lagt var fyrir 9. bekk í gærmorgun komu upp tæknileg vandamál í prófakerfi, sem urðu þess valdandi að fresta þurfti próftöku. 

Fyrir um þremur árum komu einnig upp tæknileg vandamál og tókst fjölmörgum nemendum þá ekki að ljúka prófi. Í framhaldi af því ákvað mennta- og menningarmálaráðherra að þeir nemendur sem þess óskuðu fengju möguleika á að taka prófið aftur og var því jafnframt haldið fram að tæknilegir örðugleikar af þessum toga væru úr sögunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert