Átakið „Hefjum störf“ sett formlega af stað

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, …
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, á fundinum í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur með undirritun reglugerðar sett af stað sérstakt atvinnuátak undir yfirskriftinni „Hefjum störf“. Aðgerðirnar kynnti hann á opnum blaðamannafundi ásamt Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra.

Markmiðið með átakinu er að skapa allt að 7 þúsund tímabundin störf í samvinnu við atvinnulífið, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félagasamtök. Ráðgert er að verja um 4,5 til 5 milljörðum króna í átakið.

Hvetur fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög til að ráða fólk

„Þó að Covid-19 faraldurinn hafi varað lengur en við gerðum ráð fyrir þá styttist hann í annan endann. Daginn er tekið að lengja, sífellt fleiri Íslendingar fá bólusetningu og nú hefst viðspyrnan. Við erum hér að kynna gríðarlega stórar aðgerðir fyrir bæði atvinnuleitendur og atvinnulífið sem hjálpa okkur í öflugri viðspyrnu að loknum faraldri,“ segir Ásmundur í  tilkynningu.

„Ég hvet fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög og félagasamtök til að nýta þetta úrræði og ráða fólk. Við mætum óvissunni með krafti og bjartsýni og saman keyrum við þetta í gang.“

Þá ætla stjórnvöld að ná sérstaklega utan um þess hóps námsmanna sem ekki fær starf eða aðgang að öðru úrræði í sumar en það úrræði verður kynnt síðar.

Fá styrki með nýjum starfsmönnum

Átakið á að gera litlum og meðalstórum fyrirtækjum auðveldara að ráða starfsmenn og búa sig þannig undir bjartari framtíð. Fyrirtæki sem hafa færri en 70 starfsmenn geta ráðið atvinnuleitendur sem hafa verið án atvinnu í 12 mánuði eða lengur með ríflegum stuðningi.

Hverjum nýjum starfsmanni mun fylgja allt að 472 þúsund króna stuðningur á mánuði, auk 11,5% framlags í lífeyrissjóð í allt að sex mánuði. Fyrirtæki geta ráðið eins marga starfsmenn og það þarf þangað til að heildarfjöldi starfsmanna hefur náð 70.

Ráðningartímabilið er sex mánuðir, frá apríl til desember.

Ráðningarstyrkir fyrir öll fyrirtæki

Þá geta fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum nýtt sér ráðningarstyrki sem eiga að auðvelda auðvelda atvinnurekendum að ráða starfsfólk og fjölga atvinnutækifærum þeirra sem eru án atvinnu.

Með ráðningarstyrk getur atvinnurekandi fengið fullar grunnatvinnuleysisbætur með hverjum atvinnuleitanda sem hefur verið án vinnu í 30 daga eða lengur í allt að sex mánuði með hverjum nýjum starfsmanni, eða 307.430 krónur á mánuði, auk 11,5% framlags í lífeyrissjóð.

Ekkert þak er á fjölda starfsmanna sem fyrirtæki geta ráðið með þessu úrræði.

Fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir

Til að koma til móts við þann hóp sem er við það að fullnýta bótarétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins og hefur ekki fengið atvinnu við lok bótatímabilsins verður farið í sérstakar aðgerðir til að aðstoða einstaklinga í þessum hópi við að komast aftur inn á vinnumarkað.

Vinnumálastofnun mun greiða ráðningarstyrk í allt að sex mánuði, og er heimilt að lengja um aðra sex fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu, vegna ráðningar einstaklinga sem eru við það að ljúka bótarétti.

Stofnuninni verður heimilt að greiða ráðningarstyrki sem nema fullum launum samkvæmt kjarasamningum að hámarki 472.835 krónur á mánuði auk 11,5% mótframlags í lífeyrissjóð.

Skilyrði er að ráðinn sé einstaklingur sem á sex mánuði eða minna eftir af bótarétti.

Þá er sveitarfélögum einnig heimilt að ráða til sín einstaklinga sem fullnýttu bótarétt sinn innan atvinnuleysistryggingarkerfisins á tímabilinu 1. október. til 31. desember 2020.

Samtök án hagnaðarsjónarmiða

Félagasamtök, sem rekin eru til almannaheilla og án hagnaðarsjónarmiða, er gert kleift að stofna til tímabundinna átaksverkefna í vor og sumar með ráðningarstyrk sem nemur fullum launum samkvæmt kjarasamningum að hámarki 472.835 krónur á mánuði sem er hámark tekjutengdra bóta auk 11,5% mótframlags í lífeyrissjóð.

Þá verður greitt 25% álag til þess að standa straum af kostnaði við verkefnin, svo sem við landvernd, viðhald göngustíga, landhreinsun, gróðursetningu, íþróttir og afþreyingu fyrir börn og unglinga og svo framvegis.

Skilyrði fyrir ráðningarstyrk er að viðkomandi atvinnuleitandi hafi verið án atvinnu í 12 mánuði eða lengur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert