Framlög aukin um milljarð á ári

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpar hér leiðtogafund Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál …
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpar hér leiðtogafund Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál í New York. AFP

Framlög til loftslagsmála verða aukin um einn milljarð króna á ári á tímabilinu 2022-2031 samkvæmt áætlunum ríkisstjórnarinnar.

Þetta kemur fram í fjármálaáætlun 2022-2026 sem fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í gær og er liður í að mæta hertum markmiðum Íslands um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Fjármununum verður einkum varið til aðgerða á sviði náttúrumiðaðra lausna, landbúnaðar, orkuskipta og í frekari stuðning við breyttar ferðavenjur að því er segir á vef stjórnarráðsins.

Samstarf stjórnvalda og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi um loftslagsmál undirritað …
Samstarf stjórnvalda og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi um loftslagsmál undirritað síðasta sumar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fyrir liggur á Alþingi frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um skattalegar ívilnanir vegna grænna fjárfestinga. Þar er gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs lækki um 1,2 ma.kr. á ári á

árunum 2024-2026 vegna ívilnananna.
Framlögin sem nú hafa verið kynnt eru til viðbótar þeim framlögum sem þegar höfðu verið ákveðin til loftslagsmála. Aldrei hefur verið varið eins miklum fjármunum til loftslagsmála eins og ráðgert er 2022, en þá munu 13 ma.kr. renna til málaflokksins að því er segir á vef stjórnarráðsins. 
  1. Náttúrumiðaðar lausnir í loftslagsmálum
    Efling þess starfs sem þegar er unnið að í landgræðslu og skógrækt, vernd og endurheimt votlendis, m.a. í samstarfi við bændur og aðra landeigendur.
  2. Loftslagsaðgerðir í landbúnaði
    Loftslagsaðgerðum í landbúnaði í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum verður hraðað og þær auknar í samstarfi við bændur, einkum aðgerð E1 um loftslagsvænni landbúnað í því skyni að fjölga verulega bændum sem taka þátt í loftslagstengdum verkefnum.
  3. Aukinn stuðningur við orkuskipti
    Orkuskiptum í samgöngum á landi, hafi og í lofti verður hraðað. Í samgöngum á landi verður lögð áhersla á orkuskipti á sviði ferðaþjónustu og þungaflutninga. Styðja þarf við innlenda framleiðslu endurnýjanlegs eldsneytis til að mæta þörfum. Áframhaldandi stuðningur verður við orkuskipti í haftengdri starfsemi með bættum innviðum og nýrri tækni.
  4. Efling umhverfisvænni almenningssamgangna og betri innviðir fyrir virka ferðamáta
    Áhersla verður lögð á að efla vistvænar almenningssamgöngur með fjölgun umhverfisvænni ferðavagna og að bæta innviði fyrir virka ferðamáta, m.a. með uppsetningu hleðslustöðva.

Aðgerðirnar verða unnar í samstarfi stjórnvalda og atvinnulífs og eru settar fram sem hluti af grænni endurreisn eftir kórónuveirufaraldurinn. Áherslan er á að forgangsraða verkefnum sem stuðla að mestum samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda. Þá verði auknum hluta framlaga til þróunarsamvinnu veitt til loftslagstengdra verkefna.

Forsætisráðherra tilkynnti um hert markmið Íslands í loftslagsmálum á leiðtogafundi í desember sl. Ísland hefur sett það markmið að stefna að 55% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda fram til ársins 2030, í samstarfi við Evrópusambandið og Noreg. Þá hefur Ísland einnig sett sér markmið um að ná kolefnishlutleysi árið 2040.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert