Mengun í borginni – mælt með því að hvíla bílinn

Svifryksmengun hefur verið í borginni í froststillum á umliðnum dögum.
Svifryksmengun hefur verið í borginni í froststillum á umliðnum dögum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) og svifryks (PM10) var nokkuð hár í borginni í morgun, 6. apríl samkvæmt mælingum í mælistöðvunum við Grensásveg og Bústaðaveg-Háaleitisbraut og verður það líklega aftur síðdegis og í fyrramálið. Borgarbúar eru hvattir til að skilja bílinn eftir heima á morgun og nýta aðra fararmáta til og frá vinnu.

Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar.

Klukkan tíu í morgun var styrkur svifryks á Grensásvegi 102 míkrógrömm á rúmmetra og styrkur köfnunarefnisdíoxíðs 28 míkrógrömm á rúmmetra. Í mælistöðinni á Bústaðavegi-Háaleitisbraut var styrkur svifryks 104 míkrógrömm á rúmmetra og styrkur köfnunarefnisdíoxíðs 14 míkrógrömm á rúmmetra. 

Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir svifryk PM10 eru 50 míkrógrömm á rúmmetra og fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru þau 75 míkrógrömm á rúmmetra.

Köfnunarefnisdíoxíðmengun kemur frá útblæstri bifreiða og er mest á morgnana og síðdegis þegar umferð er mest. Köfnunarefnisdíoxíð veldur ertingu í lungum og öndunarvegi. Uppspretta svifryks er uppspænt malbik, jarðvegsagnir, salt og sót úr útblæstri bifreiða.

Hægur vindur og þurrar götur búa til slæmar aðstæður

Nú er hæg­ur vind­ur og göt­ur þurr­ar, ráðgert var að þrífa götur í dag en það frestast sökum frostakafla sem nú stendur yfir. Búist er við svipuðum veðurfarsaðstæðum áfram og því lík­ur á svifryks- og köfn­un­ar­efn­is­díoxíðmeng­un einkum við um­ferðargöt­ur núna síðdegis og í fyrramálið.

Æskilegt er að sem flestir hvíli bílinn í fyrramálið og fari með öðru móti til og frá vinnu. Þannig geta þeir sem eru viðkvæmir í öndunarfærum og börn notið útivistar betur. 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til.

Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á loftgæði.is. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík og annars staðar á landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert