Blaðamannafundur vegna Covid-19

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar eftir hádegi um aðgerðir tengdar Covid-19-faraldrinum.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra greindi frá því að loknum ríkisstjórnarfundi rétt fyrir hádegið.

Ekki er ljóst hvort fjallað verður um hertar aðgerðir á landamærum eða innanlands en Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði í samtali við mbl.is skömmu fyrir hádegi að hann hefði ekki skilað minnisblaði um hertar aðgerðir innanlands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert