690 milljóna menningarsamningur

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á …
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri við undirritun samningsins Ljósmynd/Aðsend

Menningarsamningur mennta- og menningarmálaráðuneytis og Akureyrarbæjar var undirritaður í dag. Meginmarkmið samningsins eru að efla hlutverk bæjarins í lista- og menningarlífi á Íslandi og stuðla að fleiri menningartengdum störfum í bænum.

Samningurinn kveður á um 230 milljóna kr. árlegan stuðning ríkisins við menningarstarf bæjarins og er til þriggja ára. Um er að ræða 15% hækkun frá fyrri samningi, að því er fram kemur í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. 

„Akureyrarbær státar af fjölbreyttu menningarlífi og það er mikilvægur liður í okkar menningarstefnu að stuðla að uppbyggingu, aðgengi og fagmennsku í listalífi íbúa um land allt. Þannig eflum við samfélög og stuðlum að auknum lífsgæðum,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, í tilkynningunni.

„Akureyrarbær er að mörgu leyti í einstakri stöðu sem stærsti þéttbýliskjarninn utan höfuðborgarsvæðisins. Menningarlífið er kvikt og þróun samstarfssamninga þarf vitanlega að taka mið af því, svo og ef vilji er til þess að víkka út hlutverk þeirra eða áhrifasvæði. Það munum við skoða áfram í samvinnu við Akureyrarbæ og menningarstofnanir á svæðinu,“ segir hún ennfremur. 

Fjögur meginverkefni

„Akureyrarbær og mennta- og menningarmálaráðuneytið hafa átt í löngu og farsælu samstarfi um uppbyggingu menningarstarfs á Akureyri og það er afar ánægjulegt að staðfesta framhald þess í dag. Tilgangur samningsins er að byggja upp atvinnustarfsemi í listum á Akureyri og við lítum svo á að með því styrkjum við mikilvæga innviði fyrir Norður- og Austurland því áhrifin teygja sig langt út fyrir bæjarmörkin,“ segir Ásthildur Sturludóttir, Bæjarstjóri Akureyrarbæjar.

Menningarsamningurinn beinist að fjórum meginverkefnum; starfsemi Leikfélags Akureyrar, Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Menningarhússins Hofs og Listasafnsins á Akureyri. Akureyrarbær ákveður og ber ábyrgð á skiptingu framlagsins til menningarstofnanna og skilgreinir hvaða kröfur eru gerðar til þeirra, samkvæmt tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert