Ráðuneytið ekki tekið ákvörðun um frekari aðgerðir

Slæm staða er á bráðamóttökunni.
Slæm staða er á bráðamóttökunni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ekki hafa verið teknar ákvarðanir um frekari aðgerðir vegna stöðunnar á bráðamóttöku Landspítala af hálfu heilbrigðisráðuneytisins. Þetta kemur fram í skriflegu svari upplýsingafulltrúa ráðuneytisins til mbl.is.

Líkt og hefur verið fjallað um undanfarna daga í fjölmiðlum hefur neyðarástandi verið lýst yfir á bráðamóttökunni. Framkvæmdastjórn Landspítala hefur fundað síðustu daga vegna stöðunnar og hafa fundirnir helst snúist um viðbragð til þess að mæta manneklu á bráðamóttökunni, þá sérstaklega á meðal lækna.

Félag bráðalækna sendi frá sér harðorða yfirlýsingu í síðustu viku vegna stöðunnar og segir þar að allri ábyrgð ef komi til alvarlegra atvika á deildinni, sem rekja megi til manneklu, sé vísað á forstjóra Landspítala, heilbrigðisráðherra, fjármálaráðherra og Alþingi.

Auka þjónustu við aldraða

Í svari heilbrigðisráðuneytisins til mbl.is kemur fram að í febrúar 2020 skilaði átakshópur tillögum til að leysa úr vanda bráðamóttökunnar. Hluti þeirra tillaga sneri að aðgerðum sem ráðuneytið myndi hrinda í framkvæmd og hluti þeirra að aðgerðum sem spítalinn er ábyrgur fyrir.

Í minnisblaði landlæknis frá 7. maí segir að þessar tillögur eru flestar þess eðlis að árangur náist ekki innan skamms.

Í svari ráðuneytisins við minnisblaðinu er bent á að nú þegar sé unnið að mismunandi leiðum til lausnar á vandanum. Í svari ráðuneytisins segir: „Áhersla hefur verið lögð á að auka framboð og fjölbreytileika þjónustu við aldraða á síðustu misserum með það að markmiði að færa þunga þjónustunnar framar í þjónustukeðjuna og freista þess þannig að minnka þörf fyrir þjónustu á hærra þjónustustigi eins og þjónustu bráðamóttaka og sjúkrahúsa.“

Heilbrigðisráðuneytið hefur lagt áherslu á að auka framboð og fjölbreytileika …
Heilbrigðisráðuneytið hefur lagt áherslu á að auka framboð og fjölbreytileika þjónustu við aldraða. mbl.is/Ómar Óskarsson

Þar megi nefna nokkur dæmi um aukna og nýja þjónustu sem sérstaklega miðar að því að tryggja öldruðum einstaklingum þjónustu á viðeigandi þjónustustigi:

  • Í desember var undirritaður nýr samningur við Reykjavíkurborg um heimahjúkrun í Reykjavík, árlegur kostnaður við samninginn nemur um tveimur milljörðum króna.
  • Rekstur öldrunarteymis Reykjavíkurborgar var styrktur.
  • Í mars var undirritaður samningur við Hafnarfjarðarbæ um endurgerð húsnæðis gamla Sólvangs þar sem komið verður á fót nýrri tegund sérhæfðrar þjónustu við aldraða. Árlega verður hægt að veita um 250 einstaklingum þjónustu í skammtímainnlögnum með endurhæfingu. Gert er ráð fyrir að sú þjónusta hefjist í árslok 2021.
  • Í apríl var Sjúkratryggingum Íslands falið að semja um 25 ný endurhæfingarrými fyrir aldraða. Gert er ráð fyrir að sú aukning endurhæfingarrýma verði að veruleika innan fárra mánaða.

Ráðuneytið nefnir nokkur verkefni í viðbót og þá sérstaklega byggingu hjúkrunarrýma síðustu ár. Hvergi er þó minnst á í svörum ráðuneytisins um tillögur fyrir beinlínis auknu fjármagni til þess að svara manneklu deildarinnar.

Landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu

Heilbrigðisráðuneytið hefur einnig komið á fót landsráði um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu sem tók til starfa í vikunni. Ráðinu er ætlað að vera ráðgefandi fyrir undirbúning ákvarðana á sviði mönnunar og menntunar í heilbrigðisþjónustu, auk þess að vera samráðsvettvangur á breiðum grundvelli um þessi mál.

Gert er ráð fyrir að landsráð skili heilbrigðisráðherra ár hvert tillögum að áætlun um aðgerðir í þágu mönnunar og menntunar í heilbrigðisþjónustu. Nánar má lesa um landsráðið á vef Stjórnarráðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert