Vesturlandsvegi lokað við Þingvallaveg vegna malbikunar

Þingvallavegur.
Þingvallavegur. mbl.is/Hallur Már

Í kvöld og nótt er stefnt á að malbika báðar akreinar á Vesturlandsvegi á milli gatnamóta við Þingvallaveg og Köldukvíslar. Veginum verður lokað meðan á framkvæmdum stendur og viðeigandi merkingar og hjáleiðir settar upp.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá klukkan 21 til 3 í nótt. 

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki við vinnu nálægt akstursbrautum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert