Bílvelta á Búðstaðavegi

Farþega bílsins sem valt var náð út úr bílnum með …
Farþega bílsins sem valt var náð út úr bílnum með því að rétta bílinn við. Ljósmynd/Ingvar Guðmundsson

Árekstur milli tveggja bíla varð við gatnamót Bústaðavegar og Háaleitisbrautar um þrjúleytið í dag. Annar bílanna valt og voru tveir fluttir á slysadeild. Þetta staðfestir slökkvilið höfuðborgarsvæðisins í samtali við mbl.is. Engar upplýsingar fengust um líðan þeirra sem fluttir voru á slysadeild.

Farþega bílsins sem valt var náð út úr bílnum með því að rétta bílinn við og koma honum út án þess að beita tækjum.

Engar upplýsingar fengust um líðan þeirra sem fluttir voru á …
Engar upplýsingar fengust um líðan þeirra sem fluttir voru á slysadeild. Ljósmynd/Ingvar Guðmundsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert