Refugees in Iceland, Solaris – hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi, No Borders og Samstaða er ekki glæpur hafa boðað til mótmælafundar gegn því sem þau kalla ómannúðlega meðferð á flóttafólki og kerfisbundnu ofbeldi Útlendingastofnunar á sunnudaginn kl. 13 á Austurvelli.
Í tilkynningu fyrir hönd skipulagshóps mómælanna segir:
„Við fordæmum ítrekaða ómannúðlega meðferð á fólki á flótta og kerfisbundið ofbeldi Útlendingastofnunar auk lögregluofbeldis í vikunni. Það hafa aldrei verið jafn margir á flótta í heiminum og nú og því er nauðsynlegt að stjórnvöld leggi niður Útlendingastofnun og breyti tafarlaust um stefnu í málefnum hælisleitenda.“