ÁTVR undirbýr annasama viku

Stundum þarf að hleypa viðskiptavinum Vínbúðanna inn í hollum.
Stundum þarf að hleypa viðskiptavinum Vínbúðanna inn í hollum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Átvr hefur birt hvatningu til viðskiptavina sinna um að vera snemma á ferðinni, enda sé vikan fyrir verslunarmannahelgi ein annasamasta vika ársins í Vínbúðunum.

Í fyrra seldust 786 þúsund lítrar af áfengi í þeirri viku og tæplega 141 þúsund viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar. Það sem af er júlí hefur sala í Vínbúðunum verið 0,5% meiri en í júlí á síðasta ári. Að jafnaði hefur sala undanfarnar vikur verið um 600 þúsund lítrar líkt og árið 2020. Gera má ráð fyrir að júlí verði söluhæsti mánuður ársins í Vínbúðunum eins og í fyrra, segir í frétt á heimasíðu ÁTVR.

Að jafnaði er föstudagurinn fyrir verslunarmannahelgi einn af annasömustu dögum ársins. Í fyrra seldust 229 þúsund lítrar þann dag og alls fengu um 38 þúsund viðskiptavinir þjónustu í Vínbúðunum. Flestir koma á milli kl. 16 og 18 og þá þurfti oft að grípa til þess ráðs að hleypa viðskiptavinum inn í hollum.

„Fyrir þá sem vilja forðast bið og langar biðraðir er gott að huga að því að vera tímanlega. Gott ráð er að kíkja við fyrri part vikunnar og fyrri part dagsins,“ segir í fréttinni.

Í Vínbúðunum er opið samkvæmt venju á föstudag og laugardag um verslunarmannahelgi en lokað sunnudag og mánudag, frídag verslunarmanna. sisi@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert