Tilraunir til neyslustýringar leiði til taps

Sellerí.
Sellerí.

Stjórn Neytendasamtakanna hefur sent frá sér ályktun í ljósi fréttaflutnings um að sellerí sé ófáanlegt í verslunum vegna hamlandi og misskilinnar tollverndar.

„Valfrelsi neytenda er grundvallaratriði, en enn og aftur verða neytendur fyrir barðinu á óviturlegu kerfi sem býr til vöruskort. Neytendasamtökin telja mikilvægt að stundaður sé öflugur landbúnaður á Íslandi enda mun innlend framleiðsla alltaf standa undir megin neyslu þjóðarinnar,” segir í ályktuninni.

Þar kemur fram að tilraunir til neyslustýringar með tollum og önnur verndarhyggja séu hamlandi stuðningur sem leiði til taps neytenda og einnig framleiðenda til lengri tíma litið.

„Þessi hamlandi stuðningur er hluti af gamalli og hverfandi arfleifð, af hverri bændur hafa hingað til ekki riðið feitum hesti og verður að láta af. Þess í stað þarf að leggja áherslu á styðjandi stuðning, stuðning við nýsköpun og beinan stuðning við bændur. Íslenskir bændur og aðrir matvælaframleiðendur hafa sýnt að þeim er heilt yfir treystandi til að framleiða holl og góð matvæli. Matvælaframleiðendur verða að treysta eigin framleiðslu. Treysta verður neytendum til að velja, en leggja til hliðar hamlandi hugmyndir um tollmúra og neyslustýringu,” segir einnig í ályktuninni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert