Umboðsmaður Alþingis óskar nú á nýjan leik eftir upplýsingum, frá bæði mennta- og menningarmálaráðuneytinu og nokkrum skólaskrifstofum, um aðskilnað barna frá samnemendum sínum og vistun þeirra í sérstökum rýmum grunnskóla. Þetta kemur fram á vef Umboðsmanns Alþingis.
Í júní í fyrra óskaði umboðsmaður eftir sambærilegum upplýsingum en í kjölfar þeirra svara sem honum bárust var ákveðið að aðhafast ekki frekar að sinni. Síðan hafa hins vegar borist ábendingar frá foreldrum um að börn hafi verið lokuð inni í sérstökum rýmum, jafnvel einsömul.
Það ásamt nýlegri opinberri umræðu um að dæmi séu um að börn séu lokuð inni í ákveðnum skólum og verklag í tengslum við hana er kveikjan að því að hreyfa við málinu á ný.
Umboðsmaður spyr í þessu sambandi hvort borist hafi ábendingar, kvartanir eða kærur vegna slíkra mála frá síðasta svari. Hvort vart hafi orðið við þessa framkvæmd í skólum og hvort vitneskja sé um að í einhverjum grunnskólum sé fyrir hendi almennt skráð verklag um hana.
Umboðsmaður óskar eftir svörum frá stjórnvöldum fyrir 1. nóvember næstkomandi. Sérstaklega er tekið fram í bréfunum sem send voru að berist upplýsingar sem gefi tilefni til, kunni að verða farið í vettvangsheimsóknir í tiltekna skóla.
Bæði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og umboðsmanni barna var sent afrit af bréfunum til upplýsingar.