Vatnsleki varð á gistiheimili í Austurbænum í gærkvöldi. Að sögn varðsstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst útkallið um hálftólfleytið.
Vatn hafði borist inn í tvö herbergi á gistiheimilinu og eitthvað tjón hlaust af því.
Starf slökkviliðsins á vettvangi gekk greiðlega fyrir sig.