KS heldur matargjöfunum áfram

Komið með matvæli frá KS fyrir síðustu jól.
Komið með matvæli frá KS fyrir síðustu jól. mbl.is/Árni Sæberg

„Það hefur orðið að samkomulagi á milli kaupfélagsins og hjálparstofnana að halda þessu samstarfi áfram núna í aðdraganda jólanna,“ segir Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri en Kaupfélag Skagfirðinga (KS) mun áfram gefa matvæli til nokkurra hjálparstofnana hér á landi.

Fyrir síðustu jól og fram eftir þessu ári, einkum fyrir páskana, gaf KS matvæli sem dugað hafa í nærri 200 þúsund máltíðir. Um er að ræða kjöt- og mjólkurvörur, grænmeti, kartöflur og brauð.

Upphaflega stóð til að gefa mat eingöngu fyrir síðustu jól, til að létta undir með fjölskyldum sem höfðu orðið fyrir barðinu á kórónuveirufaraldrinum og tilheyrandi atvinnuleysi. Var reiknað með mat í 40-50 þúsund máltíðir en í ljósi þess hve þörfin var mikil ákvað KS að halda aðstoðinni áfram eftir síðustu áramót.

Stór hluti matvælanna hefur farið til Fjölskylduhjálpar Íslands en einnig til mæðrastyrksnefnda víða um land, Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins og Rauða kross Íslands.

Reiknað er með að aðstoðin fari fram með svipuðum hætti og verið hefur. Úthlutanir matvælanna frá KS hefjast hjá hjálparstofnunum í byrjun nóvember og munu standa yfir fram að jólum.

„Gerir gæfumuninn“

„Við sjáum fram á að geta aðstoðað þúsundir núna í nóvember og desember. Þetta er frábært framlag frá Kaupfélagi Skagfirðinga og gerir gæfumuninn, bara fyrir síðustu jól reiknaðist okkur til að verðmæti máltíðanna sem við úthlutuðum hefði verið um 47 milljónir króna. Síðan héldu gjafirnar áfram til páska og ég hygg að kaupfélagið hafi gefið alls um 100 milljónir króna, bara til okkar,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir hjá Fjölskylduhjálpinni. „Við tökum niður pantanir hjá okkar skjólstæðingum og fáum matvörur í samræmi við það frá kaupfélaginu. Hver fjölskylda fær þrjár eða fjórar máltíðir.“

Ásgerður Jóna metur stöðuna þannig í dag að þörfin fyrir mataraðstoð sé svipuð og verið hefur, það sýni úthlutanir sem fóru fram í vikunni í Reykjavík og Reykjanesbæ. Þar hafi um 400 heimili fengið aðstoð. Þegar matvörurnar bárust frá KS fengu um 2.400 heimili máltíðir í hverjum mánuði hjá Fjölskylduhjálpinni.

Þörfin ekki minnkað

Vilborg Oddsdóttir hjá Hjálparstarfi kirkjunnar tekur undir með Ásgerði Jónu um að þörfin fyrir aðstoð sé svipuð nú og áður. Skjólstæðingar hjálparstarfsins fá inneignarkort til að kaupa inn mat, allt árið um kring, og framlag KS hefur bæst þar ofan á. „Það er bara frábært að fá svona viðbótarstuðning,“ segir hún.

Vilborg segir skjólstæðingum hafa fjölgað verulega í upphafi kórónuveirufaraldursins og þeim hafi ekki fækkað síðan þá. „Þó að margir hafi komist aftur út á vinnumarkaðinn þá bætast bara við nýir í staðinn. Síðan hefur matarverð verið að hækka, húsaleiga og fleira, og lægstu launin ekki hækkað til jafns við það,“ bendir Vilborg á.

Á síðasta starfsári hjálparstarfsins, sem lauk 30. júní sl., leituðu 2.363 fjölskyldur eftir efnislegri aðstoð í samtals 4.724 skipti. Þær voru frá 80 mismunandi þjóðlöndum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert