Framkvæmdir hefjast í Vetrarmýri á næsta ári

Vetrarmýri í Garðabæ.
Vetrarmýri í Garðabæ.

Byggingarréttur fyrir fjölbýlis- og atvinnuhúsnæði á fimm aðskildum byggingarreitum við Vetrarmýri í Garðabæ hefur verið auglýstur. Samkvæmt upplýsingum frá Garðabæ er reiknað með að framkvæmdir í þessum áfanga hefjist á árinu 2022 og lóðir verði afhentar haustið 2022. Vetrarmýri er eitt af þremur fyrirhuguðum uppbyggingarsvæðum á Vífilsstaðalandi.

Vetrarmýri er 20 hektara byggingaland, að fullu í eigu Garðabæjar, sem markast af Hnoðraholti til norðurs, Reykjanesbraut til vesturs, Vífilsstaðavegi til suðurs og golfvelli GKG til austurs. Áætluð heildarstærð byggðar í Vetrarmýri er um 66 þúsund fermetrar af fjölbýli og 36 þúsund fermetrar af atvinnuhúsnæði með 664 íbúðum að hámarki. Í fyrsta áfanga, sem nú hefur verið auglýsur, eru boðnir út u.þ.b. 26 þúsund fermetrar af fjölbýli og 26 þúsund fermetrar af atvinnuhúsnæði á fimm aðskildum reitum auk möguleika fyrir bjóðendur í atvinnuhúsnæði að bjóða í bílastæðahús við Reykjanesbraut.

Miðað er við að hús á svæðinu verði ekki hærri en fjórar hæðir. Við gerð deiliskipulagsins var horft til góðra tenginga við stofnbrautina Reykjanesbraut, almenningssamgöngur og göngu- og hjólastíga og nálægðar við útivistarperlur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert