Spáð er breytilegri átt í dag, yfirleitt 5 til 10 metrum á sekúndu.
Rigning eða snjókoma verður með köflum í flestum landshlutum. Hiti verður um og yfir frostmarki.
Á morgun verður vestlæg átt á norðanverðu landinu, 5 til 13 m/s og snjókoma með köflum.
Suðaustan 3-10 m/s verða sunnantil og stöku él. Frost verður á bilinu 0 til 5 stig.