98% á göngudeild einkennalitlir eða einkennalausir

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi. mbl.is/Jón Pétur

Alls liggja nú 45 sjúklingar á Landspítala með kórónuveiruna. Sjö eru á gjörgæslu og tveir þar af í öndunarvél. 

Þetta kemur fram á vef Landspítala.

Meðalaldur þeirra sem eru á sjúkrahúsi með Covid-19 er 63 ár. 

Samtals 8.025 manns eru skráðir á Covid-göngudeild Landspítala, þar af 2.795 börn. 

Af þeim er einn rauðmerktur og innlögn líkleg en 153 eru gulmerktir og er sérstaklega fylgst með ástandi þeirra. Aðrir eru einkennalitlir eða einkennalausir, eða 98% allra þeirra sem eru með veiruna. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert