38 á Landspítala með Covid-19

Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

38 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19, sem eru þremur fleiri en í gær. Fjórir eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél. 

Meðalaldur þeirra sem liggja inni er 64 ár, að því er segir í tilkynningu. 

9.089 sjúklingar eru á Covid-göngudeild spítalans, þar af 3.288 börn. 

Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 363 innlagnir vegna Covid-19 á Landspítala.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert