Sterk Selfosstenging í landsliðinu

Öflugir handknattleiksmenn nú staddir á EM í Búdapest. Á myndinni …
Öflugir handknattleiksmenn nú staddir á EM í Búdapest. Á myndinni eru, frá vinstri, Teitur Örn Einarsson og Elvar Örn Jónsson, frændur í þriðja og fjórða lið. Þá Ómar Ingi Magnússon og loks Janus Daði Smárason. Ljósmynd/Jón Birgir Guðmundsson

Nokkrir leikmenn í karlalandsliði Íslands, sem hefur slegið í gegn á EM í Ungverjalandi að undanförnu, eru frá Selfossi eða hafa tengingar við bæinn að öðru leyti. Handboltamenningin í bæjarfélaginu er sterk og Umf. Selfoss heldur úti öflugu starfi bæði meðal karla og kvenna frá yngstu flokkum til meistaraliða. Ýmsir þeir leikmenn sem fremstir hafa verið að undanförnu og leikið vel í Búdaprest á yfirstandandi móti eiga sömuleiðis til handboltafólks að telja. Eru af ættum eða úr stórfjölskyldum sem lengi hafa verið öflugar sem þátttakendur í íþróttalífi í bænum, hvort heldur er í keppni eða stuðningi.

Frændur í þriðja og fjórða lið

Frá Selfossi eru landsliðsmennirnir Elvar Örn Jónsson og Teitur Örn Einarsson traustir hlekkir, en þeir eru frændur í þriðja og fjórða lið. Foreldrar Elvars, sem spilar með MT Melsungen í Þýskalandi og er miðjumaður í vörn landsliðsins, eru Ragnhildur Sigurðardóttir íþróttafræðingur og Jón Birgir Guðmundsson sjúkraþjálfari, annar tveggja slíkra hjá landsliðinu.

Frækið lið Selfoss sem vann Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla vorið …
Frækið lið Selfoss sem vann Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla vorið 2019. Íþróttahefðin í bæjarfélaginu hefur alltaf verið sterk. Ljósmynd/Guðmundur Karl

Jón Birgir er af stórum ættboga fólks sem margt hvað býr á Selfossi og er kennt við bæinn Hurðarbak í Flóa. Margt af besta frjálsíþróttafólki Héraðssambandsins Skarphéðins yfir langan tíma er af Hurðarbaksættinni. Systrabörn af þeim ættboga eru áðurnefndur Jón Birgir og Þuríður Ingvarsdóttir, móðir Teits Arnar, sem er stórskytta og leikstjórnandi í landsliðinu – en að jafnaði leikmaður Flensburg-Handewitt í Þýskalandi. Faðir Teits Arnar er Einar Guðmundsson, sem fyrir 30 árum eða svo var einn helsti kappinn í sigursælu handboltaliði Selfoss á þeim tíma. Þá hefur Einar mikið sinnt þjálfun bæði á Selfossi og á stærri vettvangi á vegum HSÍ.

Fjarri góðu gamni í Búdapest nú vegna meiðsla er Haukur Þrastarson sem leikur með pólska stórliðinu Kielce. Hann er frá Selfossi og faðir hans er Þröstur Ingvarsson, bróðir Þuríðar, móður Teits Arnar sem segir frá hér að framan. Móðir Hauks er Guðbjörg Hrefna Bjarnadóttir íþróttakennari og hún hefur sterkar handboltatengingar. Er systir bræðranna Sigurjóns og Gústafs Bjarnasona, sem báðir gátu sér gott orð í handbolta fyrr á árum, fyrst með Selfossliðinu. Gústaf náði raunar líka góðum árangri með stórliðum erlendis sem og landsliðinu.

Haukur Þrastarson
Haukur Þrastarson Ljósmynd/Kielce

Þá má einnig geta þess að systir Hauks – dóttir Þrastar og Guðbjargar – er Hrafnhildur Hanna, sem nú leikur handbolta með meistaraflokksliði ÍBV.

Fjórða í systkinahópi Bjarnabarna, sem fyrr er getið, er Hulda. Sonur hennar og Arons Kristjánssonar, nú landsliðsþjálfara Bareins, er Darri Aronsson, leikmaður Hauka sem nú er mættur til leiks í Ungverjalandi. Darra má því telja til Selfoss að einhverju marki, þótt hann hafi aldrei átt þar heima.

Darri Aronsson
Darri Aronsson mbl.is

Hergeirsfólk og Haugverjar

Janus Daði Smárason, miðjumaður í landsliðinu, sem reyndar hefur verið frá í flestum leikjum á EM vegna Covid-smits, er sonur Smára Rafns Haraldssonar og Guðrúnar Herborgar Hergeirsdóttur, sem fyrr á tíð var öflug handboltakona á Selfossi. Bræður hennar eru Þórir, frækinn og sigursæll þjálfari norska kvennalandsliðsins, og Grímur. Sá síðarnefndi var mikið í handbolta fyrr á árum, bæði sem leikmaður og þjálfari, meðal annars meistaraflokks karla á Selfossi sem urðu Íslandsmeistarar vorið 2019. Grímur hefur einnig komið að þjálfun ÍBV, en býr nú í Vestmannaeyjum og er lögreglustjóri þar.

Bjarki Már Elísson, varnarmaður í landsliðinu, nú leikmaður með TBV Lemgo í Þýskalandi, átti stórleik í gær á EM. Hann lék um hríð með Selfossi og er tengdasonur bæjarins. Kona hans er Unnur Ósk Steinþórsdóttir, hálfsystir Inga Þórs Steinþórssonar, hins þekkta körfuboltaþjálfara.

Bjarki Már Elísson
Bjarki Már Elísson mbl.is/Unnur Karen

Síðast en ekki síst er það svo hægriskytta landsliðsins, Ómar Ingi Magnússon, leikmaður Magdeburg í Þýskalandi, sem valinn var á dögunum Íþróttamaður ársins 2021. Foreldrar hans eru Magnús Þór Hafsteinsson og Dóra Kristín Hjálmarsdóttir sem reka fyrirtækið HM-lyftur og búa á Selfossi. Ómar Ingi lék í mörg ár með Selfossliðinu í handbolta en reri svo á ný mið, enda maður á heimsvísu í sinni íþróttagrein. Ekki hefur Ómar Ingi beinar tengingar við hinar þekktu íþróttaættir á Selfossi, en frændur hans í móðurætt frá Haugi í Gaulverjabæjarhreppi í Flóa voru fyrr á árum margir hverjir þekktir glímukappar eða fyrir krafta, enda margir afrendir að afli.

Sterk hefð og stolt bæjarbúa

„Á Selfossi er hefðin sterk og handboltinn er stolt bæjarbúa,“ segir Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari meistaraflokksliðs karla þar í bæ. Hann kom til starfa eystra fyrir tveimur árum, í umhverfi þar sem handboltanum eru sköpuð góð skilyrði. Starf handknattleiksdeildar Umf. Selfoss sé öfugt og sterk og við handboltaakademíu Fjölbrautaskóla Suðurlands fái ungt og efnilegt fólk frábær tækifæri, sem bjóðist ekki á hefðbundum æfingum.

„Á bak við handboltann á Selfossi eru sterkir foreldrahópar, stórfjölskyldur og jafnvel heilu ættirnar sem eru starfinu mjög mikilvægar. Einnig eru almenningur og fyrirtæki í bænum öflug í stuðningi. Fyrir þjálfara eru þetta frábær starfsskilyrði, eitt það besta sem býðst á Íslandi,“ segir Halldór Jóhann.

Halldór Ingi Sigfússon
Halldór Ingi Sigfússon Ljósmynd/Eva Björk

Íþróttagenin í ættinni eru afar sterk

Af landsliðsmönnum sem koma úr handboltastarfinu á Selfossi á Þórir Haraldsson, formaður handknattleiksdeildar Umf. Selfoss, tvo frændur af Hurðarbaksætt, þá Elvar Örn Jónsson og Teit Örn Einarsson. Þórir er þremenningur við Guðmund Kr. Jónsson, afa Elvars, og Þuríður, móðir Teits, og hann eru systrabörn. „Þetta er ekki náinn skyldleiki, en verður hins vegar svo þegar ættrækni er sterk og fólk fylgist hvað með öðru,“ segir Þórir.

Hurðarbaksætt er úr Flóa, rakin frá Árna Pálssyni (1859-1941) og Guðrúnu Sigurðardóttur (1862-1915). Þau áttu stóran barnahóp og ætt sem hefur dreift sér víða.

Frá 2017 til 2018 náði Hurðarbaksættin í meistaraflokki handknattleiksliðs Selfoss á þeim tíma að manna sjö stöður keppnisvallarins, alls sjö leikmenn. Þó vantaði einn hornamann. Sá frændi hefði getað komið úr Val á þeim tíma; Benedikt Gunnar Óskarsson, sem er af Hurðarbaksætt.

„Íþróttagenin í ættinni eru afar sterk,“ segir Þuríður Ingvarsdóttir. Teitur Örn, sonur hennar, byrjaði snemma að sækja handboltaæfingar, þar sem frændhópurinn fylgdist að í yngri flokkum. Þuríður segir stórfjölskylduna eðlilega fylgjast vel með boltanum og sérstaklega nú á EM. Fólk sé þó yfirleitt hvað á sínu heimili, svo ekki sé efnt sé til ættarsamkoma þótt spennandi leikir séu sjónvarpi.

Kennt flestum

„Já, ég kynntist og kenndi flestum handboltastrákunum,“ segir Þuríður sem er handavinnukennari við Vallaskóla á Selfossi. „Ég er örvhent og því lærðu þeir hjá mér að prjóna með vinstri hendi. Að geta svolítið í handavinnu hefur ábyggilega komið sér vel í handbolta hvað varðar þjálfun í fínhreyfingum,“ segir Þuríður.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert