Gengst við ofbeldinu og biðst afsökunar

Frosti Logason.
Frosti Logason.

Frosti Logason fjölmiðlamaður hefur gefið frá sér yfirlýsingu á facebooksíðu sinni þar sem hann gengst við að hafa beitt fyrrverandi kærustu sína, Eddu Pétursdóttur, andlegu ofbeldi.

Í umfjöllun á vef Stundarinnar sem birtist í dag lýsti Edda andlegu ofbeldi á meðan sambandinu stóð.

Frosti hafi meðal annars tekið hana upp í kynferðislegum athöfnum án leyfis og hótað að dreifa því.

Þar að auki hafi hann áreitt sig eftir sambandsslitin með tölvupóstum og smáskilaboðum meðal annars.

Hafi eytt samskiptunum

Í yfirlýsingu Frosta segist hann taka fulla ábyrgð á hegðun sinni og að hann „rengi ekki upplifun [Eddu]“. Hann hafi verið á vondum stað á þeim tíma sem þau voru saman og haldinn þráhyggju í kjölfar sambandsslitanna.

Þá hafi hann, undir handleiðslu fagaðila, hafið bataferil og í kjölfarið eytt öllum þeirra samskiptum. Hann hafi því ekki gert sér almennilega grein fyrir því sem hann sagði og skrifaði henni á fyrr en hann sá viðtalið sem birtist í morgun.

„Ég veit að ekkert getur bætt fyrir hegðun mína, það minnsta sem ég get gert er að gangast við því sem ég gerði og biðjast innilega afsökunar.“

Yfirlýsing Frosta í heild sinni:

Í dag birtist viðtal við fyrrverandi kærustu mína sem ég átti í sambandi við á árunum 2009-2012 og var til umfjöllunar í Stundinni.

Ég vil taka það skýrt fram að ég tek fulla ábyrgð á minni hegðun og rengi ekki upplifun hennar. Samband okkar var ekki heilbrigt og framkoma okkar við hvort annað langt í frá til fyrirmyndar. Ég var á vondum stað á þessum tíma. Ég tók sambandsslit okkar mjög nærri mér og í kjölfar þeirra kom hryllilegt tímabil þar sem ég var haldinn þráhyggju og sagði og gerði hluti sem ég sé mikið eftir.

Með hjálp sálfræðings, þerapista og tólf spora samtaka hóf ég bataferil minn. Hluti af því ferli var að eyða öllum okkar fyrri samskiptum. Ég hef því ekki gert mér grein fyrir nákvæmlega hvað ég hafði sagt og skrifað á þessu tímabili fyrr en ég sá viðtalið við hana í morgun.

Ég veit að ekkert getur bætt fyrir hegðun mína, það minnsta sem ég get gert er að gangast við því sem ég gerði og biðjast innilega afsökunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert