Reykjanesbraut verði lögð í stokk

Skipulag Smárans samkvæmt vinningstillögu.
Skipulag Smárans samkvæmt vinningstillögu. Mynd/Borg í mótun/Grænn miðbær.

Tillaga, sem kveður á um að hluti Reykjanesbrautar verði lögð í stokk, varð hlutskörpust í hugmyndasamkeppni um þverun Reykjanesbrautar ásamt byggð yfir og/eða við Reykjanesbraut á vegum Kópavogsbæjar. 

Gerbreytt yfirbragð blasir við Smárahverfi í Kópavogi miðað við vinningstillöguna. Þar er einnig gert ráð fyrir tengingum fyrir vistvæna ferðamáta, svo sem stöð fyrir Borgarlínu ásamt tengingu við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Mynd/Borg í mótun/Grænn miðbær.

Niðurstaða keppninnar var kynnt í dag og verðlaunahöfum veittar viðurkenningar. Nafn vinningstillögunar er Borg í mótun/Grænn miðbær.

Bæjarstjórn Kópavogs átti frumkvæðið að hugmyndasamkeppninni og var keppnin unnin í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. 

„Markmið Kópavogsbæjar með samkeppninni var meðal annars að styrkja svæðiskjarnann í Smára og efla tengsl á milli svæða innan kjarnans fyrir alla ferðamáta. Verðlaunatillögur verða til sýnis í Bókasafni Kópavogs fram yfir helgi og og aðgengilegar á vef Kópavogsbæjar,“ segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ. 

Höfundar verðlaunatillögunnar eru ASK arkitektar ehf., Þorsteinn Helgason, arkitekt FAÍ, Jakob Jakobsson, arkitekt FAÍ, aðstoð veittu: Anna Margrét Sigmundsdóttir, arkitekt FAÍ og Páll Gunnlaugsson, arkitekt FAÍ.

Dómnefnd var skipuð eftirfarandi aðilum: Hrafnkell Ásólfur Proppé, skipulagsfræðingur, formaður dómnefndar, fulltrúi Kópavogsbæjar Bergljót Kristinsdóttir, bæjarfulltrúi, fulltrúi Kópavogsbæjar Hjördís Ýr Johnson, bæjarfulltrúi, fulltrúi Kópavogsbæjar Birkir Einarsson, landslagsarkitekt FÍLA Hans-Olav Andersen, arkitekt FAÍ, MNA.

Frá vinstri: Hrafnkell Proppé, Þorsteinn Helgason, arkitekt FAÍ, Jakob Jakobsson, …
Frá vinstri: Hrafnkell Proppé, Þorsteinn Helgason, arkitekt FAÍ, Jakob Jakobsson, arkitekt FAÍ, aðstoð veittu: Anna Margrét Sigmundsdóttir, arkitekt FAÍ, Páll Gunnlaugsson, arkitekt FAÍ, Ármann Kr. Ólafsson. Ljósmynd/Kópavogsbær
Mynd/Borg í mótun/Grænn miðbær.
Mynd/Borg í mótun/Grænn miðbær.
Mynd/Borg í mótun/Grænn miðbær.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert