Sigurjón aðstoðar Willum

Sigurjón Jónsson er nýr aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar, heilbrigðisráðherra.
Sigurjón Jónsson er nýr aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar, heilbrigðisráðherra. Ljósmynd/Aðsend

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Sigurjón Jónsson tímabundið sem aðstoðarmann sinn í fjarveru Millu Óskar Magnúsdóttur sem er í fæðingarorlofi.

Sigurjón er með B.Sc. próf í markaðsfræðum frá Auburn háskólanum í Alabama. Hann hefur á annað ár verið starfsmaður þingflokks Framsóknar og unnið að kynningarmálum og ýmsum öðrum verkefnum.

Sigurjón hefur víðtæka reynslu af markaðs og kynningarmálum sem og veflausnum í gegnum fyrri störf sín hjá NOVA, Sjóvá og 433.is.

Sigurjón er í sambúð með Tinnu Rún Davíðsdóttir Hemstock og eiga þau tvo syni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert