Einn lést í snjóflóðinu

mbl.is

Einn lést í snjóflóðinu sem varð í Svarfaðardal í gær. Lögreglan á Norðurlandi eystra greindi frá rétt í þessu en maðurinn var látinn er viðbragðsaðilar komu að slysinu.

Á Facebook-síðu lögreglunnar kemur fram að mennirnir þrír voru fæddir árið 1988 og voru allir vanir fjallamenn. Allir hlutu þeir alvarlega áverka í slysinu.

Hinir tveir voru fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri og annar þeirra síðan á Landspítalann. Frekari upplýsingar um afdrif hans liggja ekki fyrir hjá lögreglu á þessu stigi.

Viðbragðsteymi Rauða krossins var kallað út og fóru nokkrir félagar þess til Dalvíkur til að líta til með þeim viðbragðsaðilum sem fyrstir komu á vettvang.

Þá segir að nokkurn tíma tók að afla upplýsinga um nánustu aðstandendur þess látna í Bandaríkjunum.

Er þær upplýsingar lágu fyrir í nótt var óskað eftir aðstoð hjá sendiráði Bandaríkjanna við að tilkynna aðstandendum um andlátið.

Maðurinn sem lést var einhleypur og barnlaus.

Hefðbundin slysarannsókn heldur áfram en ekki er hægt að segja hvenær niðurstöður hennar liggja fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert