Verði þægilegra að gera breytingar á fasteignum

Hverfisskipulag Breiðholts er afrakstur vinnu- og samráðsferlis sem hófst árið …
Hverfisskipulag Breiðholts er afrakstur vinnu- og samráðsferlis sem hófst árið 2016. mbl.is/Sigurður Bogi

Hverfisskipulag fyrir Neðra-Breiðholt, Seljahverfi og Efra-Breiðholt hefur tekið gildi og leysir af hólmi eldri deiliskipulagsáætlanir. Helstu markmið hverfisskipulagsins eru að gróin hverfi í borginni verði sjálfbærari og vistvænni en áður, íbúðum fjölgi og þægilegra verði fyrir húseigendur að gera breytingar á fasteignum sínum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 

Fram kemur, að með samræmdum skipulagsskilmálum, sem hafi m.a. tekið mið af algengum umsóknum um breytingar á fasteignum, verði nú mun auðveldara fyrir húseigendur í Breiðholti að sjá hvaða heimildir þeir hafi til breytinga á sínum fasteignum og einfaldara að sækja um leyfi þar sem tímafrekar og kostnaðarsamar deiliskipulagsbreytingar og grenndarkynningar verði að mestu úr sögunni.

mbl.is/Sigurður Bogi

Fá heimild til að útbúa aukaíbúð og byggja hóflegar viðbyggingar

Þá segir, að á upplýsingasíðu hverfisskipulags fyrir Breiðholt geti fasteignaeigendur nálgast allar upplýsingar um skipulagsskilmála sem gildi fyrir viðkomandi eign, ásamt leiðbeiningaritum hverfisskipulags sem leiðbeini um nánari útfærslu ýmissa skilmála og hvernig sækja skuli um leyfi til breytinga og/eða úrbóta. Leiðbeiningar hverfisskipulags séu ekki bundnar einstökum hverfum, heldur séu algildar fyrir öll hverfi borgarinnar sem fá samþykkt hverfisskipulag.

„Fjölmargir eigendur sérbýlis- og raðhúsa hafa nú fengið heimild til að útbúa aukaíbúð í sínu húsi, byggja hóflegar viðbyggingar, setja kvisti á þak o.s.frv. Mörgum húsfélögum lyftulausra fjölbýlishúsa í Breiðholti er einnig heimilt að byggja eina hæð ofan á núverandi hús, gegn því skilyrði að um leið verði lyftu komið fyrir við húsið til að bæta aðgengi. Rétturinn til byggingar ofan á fjölbýlishús er alfarið í eigu lóðarhafa sem einir geta ráðstafað honum, ef um það næst samstaða,“ segir ennfremur. 

Meðal helstu atriða í hverfisskipulagi Breiðholts eru:

  • Uppbygging og efling hverfiskjarna í öllum hverfum Breiðholtsins, þ.á.m. við Arnarbakka og Eddufell-Völvufell þar sem deiliskipulagsvinnu er að mestu lokið, samhliða gerð hverfisskipulagsins. 
  • Efling byggðar við Austurberg og Gerðuberg þar sem styrkja á miðju Efra-Breiðholts og borgarhlutans, m.a. með uppbyggingu dans- og fimleikahúss sem nýst getur öllum borgarbúum. 
  • Borgargötur sem njóta forgangs við endurhönnun og fegrun verða við Arnarbakka í Neðra Breiðholti, Rangársel í Seljahverfi og Austurberg í Efra Breiðholti. Við borgargötur verða byggðir upp innviðir eins og hverfistorg, hleðslustöðvar og djúpgámar.
  • Hverfiskjarnar við Hólagarð og Rangár- og Hólmasel eru skilgreindir sem þróunarreitir og unnið verður sérstakt deiliskipulag fyrir þá. Sama gildir um Mjóddina þar sem vinna við deiliskipulag hefst á þessu ári.
  • Áhugavert þróunarsvæði er einnig skilgreint við Jórufell, en í skipulagsferlinu komu fram hugmyndir um að þróa þar nýja byggð í samvinnu við Félagsbústaði, sem eiga allar íbúðir þar. Önnur skilgreind þróunarsvæði fyrir nýja byggð eru við Suðurfell og Suðurhóla. 
  • Síðast en ekki síst skal nefna vetrargarð í Seljahverfi sem hlaut feikilega góðar viðtökur í samráðsferli hverfisskipulags. Undirbúningur framkvæmda er þegar vel á veg kominn.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert