Gert ráð fyrir 436 íbúðum ásamt verslun og þjónustu

Á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir allt að 436 íbúðum …
Á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir allt að 436 íbúðum ásamt verslunar- og þjónustustarfsemi á jarðhæðum. Teikning/Yrki arkitektar

Deiliskipulag fyrir Heklureit, eða fyrir lóðirnar við Laugaveg 168-174a, hefur verið samþykkt eftir auglýsingu og að teknu tilliti til athugasemda. Í tillögunni eru settar fram skipulagslegar heimildir fyrir íbúðir, atvinnustarfsemi og gististarfsemi. 

Um er að ræða íbúðarhús, 2-7 hæða, með möguleika á 8. hæð, á norðvesturhorni Laugavegs 168. Byggðin er mótuð með tilliti til landslags, sólargangs og veðurfars. Hún rís hæst til norðurs við Laugaveg og er lægst til suðurs við Brautarholt, að því er Reykjavíkurborg greinir frá. 

„Byggingarnar skulu vera stallaðar með ríku tilliti til sólarátta og byggð skipulögð þannig að miðlægur inngarður sé í góðu skjóli fyrir veðri og vindum við allar byggingar. Gert er ráð fyrir sérafnotaflötum fyrir íbúðir á jarðhæðum og svölum á efri hæðum. 

Á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir allt að 436 íbúðum ásamt verslunar- og þjónustustarfsemi á jarðhæðum. Heildarflatarmál ofanjarðar á lóðunum er 44.083 m2 (A+B rými). Þar af eru lágmark 2.123 m2 undir verslanir og þjónustu.

Yrki arkitektar gerðu tillögu að deiliskipulaginu. Hún var fyrst lögð fram árið 2018. Hún var svo endurskoðuð 2021 og hefur nú tekið breytingum eftir auglýsingatíma og umsögn skipulagsfulltrúa.“

Gert er ráð fyrir að allar byggingar á lóð Laugavegs 168 til 174a verði rifnar, að undanskildu borholuhúsi, segir ennfremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert