Hiti fer yfir 20 stig í dag

Blíðviðri verður um allt land í dag.
Blíðviðri verður um allt land í dag. mbl.is

Hiti fer yfir 20 stig á suðurhluta landsins í dag þegar best lætur og gert er ráð fyrir bjartviðri bæði í dag og á morgun. Vindur verður almennt hægur eða um 3 til 8 metrar á sekúndu. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Sumstaðar má þó búast við þokulofti við ströndina í kvöld og í nótt og verður veður svalara á þeim slóðum. Hiti verður á bilinu 11 til 21 stig, hlýjast syðst.

Aðfaranótt þriðjudags þykknar svo upp sunnan og vestantil á landinu og má þá gera ráð fyrir dálítilli rigningu. Þá kólnar jafnframt í veðri. Á Norðausturlandi helst þó bjart og ætti hiti að ná 15 til 16 stigum yfir hádaginn.

Veðurhorfur næstu daga:

Á mánudag:
Norðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og skýjað með köflum vestast á landinu, annars víða léttskýjað, en sums staðar þokuloft við ströndina. Hiti 12 til 20 stig yfir daginn, en svalara í þokunni.

Á þriðjudag:
Austlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s, skýjað með köflum og stöku skúrir, en léttskýjað norðaustantil. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á Norðausturlandi.

Á miðvikudag og fimmtudag:
Suðlæg átt, 3-8 m/s, skýjað að mestu og víða dálitlir skúrir. Hiti 6 til 13 stig.

Á föstudag og laugardag:
Suðvestlæg eða breytileg átt og skúrir eða rigning víða um land. Kólnar í veðri.

Veður á mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert