Dúxinn með 9,19 í meðaleinkunn

Ágúst Ingi Davíðsson á svölunum heima en móðir hans tók …
Ágúst Ingi Davíðsson á svölunum heima en móðir hans tók við verðlaununum fyrir hans hönd á útskriftarathöfninni. Ljósmynd/Aðsend

Skólaslit Menntaskólans í Kópavogi voru 28. maí. Frá skólanum útskrifuðust 49 stúdentar og 36 iðnnemar í bakstri, matreiðslu og framreiðslu ásamt því að 31 nemandi lauk iðnmeistararéttindum. Dúx skólans í bóknámi var að þessu sinni Ágúst Ingi Davíðsson, sem hlaut 9,19 í meðaleinkunn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Menntaskólanum í Kópavogi. 

Sinnir íþróttum jafnt sem námi

Ágúst Ingi var nýnemi í fyrsta árganginum sem hóf nám á Afrekssviði MK. Hann hefur stundað fimleika frá fjögurra ára aldri og sinnt bæði íþróttum sem námi með prýði. Hann hefur keppt fyrir Íslands hönd í drengja- og unglingaflokki á Norðurlandamótum og Evrópumótum sem og öðrum erlendum mótum. Móðir hans tók við viðurkenningum fyrir hans hönd þar sem Ágúst var þá einmitt staddur á móti, að því er skólinn greinir frá. 

Tungumálið engin hindrun

Roman Chudov hlaut viðurkenningu fyrir eftirtektarverðan árangur í námi.
Roman Chudov hlaut viðurkenningu fyrir eftirtektarverðan árangur í námi. Ljósmynd/Menntaskólinn í Kópavogi

Roman Chudov fékk sérstaka viðurkenningu fyrir eftirtektarverðan árangur, þar sem hann hefur búið á Íslandi í sjö ár og hefur íslensku ekki sem móðurmál en kláraði alla stærðfræðiáfanga skólans með 10 í meðaleinkunn. Einnig kláraði hann námið á þremur árum með 40 viðbótareiningar.  

Hæst í verknámsprófi

Petra Sif Lárudóttir og Margrét Friðriksdóttir, Petra Sif stóð hæst …
Petra Sif Lárudóttir og Margrét Friðriksdóttir, Petra Sif stóð hæst verknámsnemenda og tók við verðlaunum Viðurkenningasjóðs MK úr hendi fráfarandi forseta bæjarstjórnar Kópavogs. Ljósmynd/Menntaskólinn í Kópavogi

Petra Sif Lárudóttir hlaut viðurkenningu fyrir hæstu meðaleinkunn á verknámsprófi en hún er útskrifuð úr framreiðslu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert