Vegagerðin varar við snjókomu um helgina

Frá Möðrudalsöræfum í vetur. Búast má við snjókomu og krapa …
Frá Möðrudalsöræfum í vetur. Búast má við snjókomu og krapa þar. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Á hálendinu norðan Vatnajökuls mun snjóa í nótt, að því er segir í viðvörun sem Vegagerðin hefur gefið út.

Er fólk beðið um að sýna aðgát um helgina.

Krapi og snjór á Möðrudalsöræfum

Þá má búast við norðvestanstormi með hviðum á sunnudag norðaustanlands, frá Tjörnesi austur á Hérað og mögulega á Austfjörðum, að því er kemur fram í viðvöruninni.

Á Möðrudalsöræfum seint á sunnudag og um nóttina er hætt við krapa og snjó.

Uppfært:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert