Sonurinn stakk forsætisráðherra af

Katrín hljóp með G. Pétri.
Katrín hljóp með G. Pétri.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hljóp í morgun tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu. 

Hún segir í færslu á Facebook hafa lagt af stað með syni sínum Illuga og G. Pétri Matthíassyni meðhlaupara sínum en drengurinn var ekki lengi að stinga þau af og kom rúmum tíu mínútum á undan Katrínu í mark.

Katrín og G. Pétur hlupu fyrir Alzheimersamtökin.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert