Krani fór á hliðina við Bústaðakirkju

Kraninn fór á hliðina við Bústaðakirkju, en unnið var við …
Kraninn fór á hliðina við Bústaðakirkju, en unnið var við kirkjuturninn. Ljósmynd/Guðjón

Maður slasaðist þegar krani fór á hliðina við Bústaðakirkju í dag, en maðurinn var í körfu kranans. Kraninn lenti jafnframt á kyrrstæðum bíl sem eyðilagðist.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var maðurinn fluttur á spítala, en hann hafði fengið höfuðhögg. Er talið að hann hafi fallið úr um þriggja metra hæð, en ekki er vitað frekar um ástand hans.

Kraninn fór á hliðina við Bústaðakirkju, en unnið var við …
Kraninn fór á hliðina við Bústaðakirkju, en unnið var við kirkjuturninn. Ljósmynd/Guðjón

Slökkviliðið fór svo í olíuhreinsun á staðnum, en starfi þeirra var lokið á fjórða tímanum.

Frá vettvangi í dag.
Frá vettvangi í dag. Ljósmynd/Guðjón
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert