Viðbragðsaðilum boðið frítt í Vök Baths

Vök Baths leggja sitt af mörkum og bjóða viðbragðsaðilum frítt …
Vök Baths leggja sitt af mörkum og bjóða viðbragðsaðilum frítt ofan í frá deginum í dag og út helgina.

Vök Baths býður viðbragðsaðilum á Austurlandi frían aðgang ofan í til slökunar frá og með deginum í dag og út helgina. Þetta á við um slökkvilið, lögreglu, björgunarsveitir og starfsfólk Rauða krossins þar sem þeir hafa staðið í ströngu seinustu daga.

Vök Baths er við Urriðavatn og í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá Egilsstöðum og vill því leggja sitt af mörkum til samfélagsins eftir gærdaginn þegar eldur kviknaði í versl­un og þvotta­húsi Vasks á Eg­ils­stöðum.

Viðbragðsaðilar eru beðnir um að framvísa skilríkjum við komu og fá við það frían aðgang í Vök Baths.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert