Vilja fá nýja vatnslögn

Bili vatnsleiðslan skapast neyðarástand fyrir íbúa og atvinnulíf. Því þarf …
Bili vatnsleiðslan skapast neyðarástand fyrir íbúa og atvinnulíf. Því þarf að leggja aðra leiðslu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bæjarráð Vestmannaeyja vill að bærinn og HS veitur, rekstraraðili og eigandi vatnsveitunnar í Vestmannaeyjum, hefji undirbúning að lagningu nýrrar vatnsleiðslu til Eyja, þrátt fyrir að innviðaráðherra hafi hafnað erindi bæjarins um fjárstuðning til framkvæmdarinnar.

Nú er ein vatnsleiðsla virk á milli lands og Eyja. Hún komst í notkun 2008. Tvær eldri leiðslur eru ónýtar.

„Vatnsleiðslan annar vatnsþörfinni og það er ekki vatnsskortur fyrirsjáanlegur en það er öryggismál fyrir okkur að hafa tvær vatnsleiðslur,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. 

Nánar um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert