Fékk Lyf og heilsu á 1,1 milljón

Fallist var á riftun á sölu Karls á öllum hlutum …
Fallist var á riftun á sölu Karls á öllum hlutum Toska ehf. til sonar síns, Jóns Hilmars Karlssonar. mbl.is/Golli

Karl Emil Wernersson seldi syni sínum, Jóni Hilmari  Lyf og heilsu á 1,1 milljónir króna. Kaupunum var rift í héraðsdómi í gær. 

Héraðsdómur vísaði frá kröfu þrotabús Karls Emils Wernerssonar þess efnis að afsala aftur til þrotabúsins öllum hlutum í Toska ehf. gegn greiðslu frá þrotabúinu á söluverði hlutanna.

Fallist var á riftun á sölu Karls á öllum hlutum Toska ehf. til sonar síns, Jóns Hilmars Karlssonar. Toska ehf., líkt og fyrr greinir. Toska móðurfélag Faxa sem átti félagið Faxar, sem átti nær allt hlutafé í Lyfjum og heilsu.

Krafðist 2,6 milljarða

Var þá ekki fallist á kröfu þrotabúsins þess efnis að Jón Hilmar greiði því 2,6 milljarða króna með dráttarvöxtum, ef afsal hluta þrotabúsins yrði ekki komið við. Var hann þess í stað dæmdur til að greiða þrotabúi Karls 464 milljónir króna auk dráttarvaxta í tæplega fjögur ár. 

Bú Karls var tekið til gjaldþrota­skipta í apríl árið 2018. Þrota­búið gerði í mál­inu kröfu um rift­un á sölu Karls á Toska til son­ar hans í aðdrag­anda gjaldþrota­skipt­anna og byggði þá kröfu ann­ars veg­ar á 131. gr. laga nr. 21/​1991 um gjaldþrota­skipti o.fl. og hins veg­ar 141. gr. sömu laga.

Féllst héraðsdómur á að um hafi verið að ræða ótilhlýðilega ráðstöfun þrotamanns í aðdraganda gjaldþrots hans, þegar Karl seldi syni sínum alla hluti í Toska ehf. Þá var Jóni gert að greiða þrotabúi Karls 21,3 milljónir í málskostnað, að meðtöldum virðisaukaskatti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert