Grenivíkurvegur áfram lokaður

Aur­skriðan féll rétt sunn­an við Fagra­bæ í Grýtu­bakka­hreppi, sunn­an við …
Aur­skriðan féll rétt sunn­an við Fagra­bæ í Grýtu­bakka­hreppi, sunn­an við Greni­vík í morg­un. Ljósmynd/Lögreglan

Grenivíkurvegur verður áfram lokaður öryggisins vegna. 

Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra. 

Eftirlitsmaður frá Veðurstofunni var við störf eftir hádegi í dag og var ástand á vettvangi metið þannig að enn væri mikil óvissa.

Því verður vegurinn lokaður áfram en til stendur að endurmeta stöðuna á morgun í birtingu.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert