„Ég er sannarlega ekki hættur“

Guðlaugur Þór telur að flokkurinn þurfi ekki að breyta gildum …
Guðlaugur Þór telur að flokkurinn þurfi ekki að breyta gildum sínum en telur að hann megi skerpa á hugmyndum sínum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðlaugur Þór Þórðarson, um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðherra segist sannarlega ekki hættur í pólitík þrátt fyrir að hafa lotið í lægra haldi fyrir Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, í formannsslagi Sjálfstæðisflokksins í byrjun mánaðar. Hann telur að sú reynsla sem hann öðlaðist í kosningaslagnum gegn Bjarna muni nýtast sér vel.

Þetta kom fram í máli ráðherrans á Sprengisandi í morgun.

Guðlaugur Þór og Bjarni öttu kappi um formannsstól Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins í byrjun nóvember. Bjarni hlaut 1010 at­kvæði af alls 1712 greidd­um, eða 59 pró­sent at­kvæða. Guðlaug­ur Þór hlaut 40 pró­sent at­kvæða, eða 687 tals­ins. Auðir og ógild­ir seðlar voru 9 og aðrir fengu 3 at­kvæði.

„Vilji er allt sem þarf“

Er þáttastjórnandi spurði Guðlaug Þór hvort hann hygðist fara aftur í formannsframboð benti Guðlaugur Þór á að skammur tími væri liðinn frá landsfundi en bætti við að hann væri sannarlega ekki hættur í stjórnmálum. 

„Ég er sannarlega ekki hættur. Þegar ég hætti þá ætla ég bara að hætta, það mun ekki fara framhjá neinum,“ sagði Guðlaugur Þór

Þá kvaðst ráðherrann ánægður með að hafa farið í framboð og benti á að sú umræða sem fór fram um stöðu flokksins hefði ekki farið fram hefði hann ekki gefið kost á sér. Ítrekaði hann skoðun sína á því að flokkurinn geti sótt meira fylgi og breikkað grasrót sína.

„Í þessu, eins og mörgu örðru, er vilji er allt sem þarf,“ sagði ráðherrann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert