Víða verður hætt við myndun lúmskrar hálku sunnan- og vestanlands í dag, einkum seinnipartinn og í kvöld eftir að það styttir upp, lægir og léttir til.
Þetta kemur fram í ábendingu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar.
Þar segir að þetta gerist jafnvel þótt lofthiti haldist í þremur til fjórum stigum.