Bjartviðri sunnan heiða

Bjartviðri verður sunnan heiða en fannkoma fyrir norðan og austan.
Bjartviðri verður sunnan heiða en fannkoma fyrir norðan og austan. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Útlit er fyrir norðaustan- og norðanátt í dag og er vindur yfirleitt fremur hægur. Vindhraði gægist yfir 10 m/s. Frost verður víða, hiti á bilinu 0 til 5 stig. Á morgun bætir síðan í vind og víða verður norðanstrekkingur þegar kemur fram á daginn, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings.

Í dag og á morgun má búast við bjartviðri sunnan heiða. Norðan- og austanlands er útlit fyrir dálítil él og bætir í élin á þeim slóðum aðfaranótt föstudags og meiri fannburður verður fram eftir föstudeginum.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert