Kannabisræktun stöðvuð á Tálknafirði

Lögreglan á Vestfjörðum framkvæmdi húsleit á Tálknafirði í gær og stöðvaði kannabisræktun sem þar fór fram.

Lagt var hald á búnað og uppskeru og var einn handtekinn. Honum var sleppt úr haldi að lokinni yfirheyrslu, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar á Vestfjörðum.

Rannsóknin er á frumstigi og segir lögreglan ekki tímabært að tilgreina umfang efna og máls að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert