Samgöngustofa braut lög við ráðningu

Samgöngustofa braut lög við ráðningu að mati umboðsmanns Alþingis.
Samgöngustofa braut lög við ráðningu að mati umboðsmanns Alþingis. mbl.is/Hari

Samgöngustofa braut lög þegar stofnunin réði einstakling til starfa til tveggja ára án þess að auglýsa stöðuna fyrst. Annmarkinn leiðir þó líklega ekki til ógildingar á ráðningunni. Þetta er álit umboðsmanns Alþingis.

Á vef embættisins kemur fram að kvartað hafi verið yfir ráðningunni á þessum forsendum. Starfið hafði verið auglýst en hætt var við ráðninguna eftir að sá sem metinn var hæfastur afþakkaði það. Fimm mánuðum síðar var ráðið í starfið tímabundið til tveggja ára án auglýsingar. Var sá ráðni ekki úr hópi þeirra sem höfðu upphaflega sótt um stöðuna.

„Í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins er mælt fyrir um almenna skyldu til að auglýsa laus embætti og önnur störf hjá ríkinu. Taldi umboðsmaður engar undanþágur laga eða reglna frá þeirri skyldu að auglýsa starfið eiga við og að Samgöngustofu hefði ekki verið heimilt að ráða með þessum hætti í það,“ segir í áliti umboðsmanns.

Mæltist umboðsmaður til að stofnunin gætti framvegis að sjónarmiðunum í álitinu og tók hann jafnframt fram að hann teldi ólíklegt að annmarkinn leiddi til ógildingar á ráðningunni. Það yrði þá að vera verkefni dómstóla að fjalla frekar um réttaráhrif þess ef einhver teldi á sig hallað vegna ráðningarinnar. 

Álitið hefur verið sent innviðaráðuneytinu til upplýsingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert