Jafn mikilvægt að senda fatnað og vopn

Þórdís Kolbrún utanríkisráðherra, Jeannette Menzies, kanadíski sendiherrann, og Georg Kr. …
Þórdís Kolbrún utanríkisráðherra, Jeannette Menzies, kanadíski sendiherrann, og Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Við höfum fengið að heyra það alloft innan úr höfuðstöðvum [Atlantshafsbandalagsins] að þessi hlýi fatnaður og það að geta klætt af sér kuldann, sé jafnmikilvægt og að fá send skotvopn eða önnur vopn. Það sem við erum að gera hér er raunverulegt framlag og skiptir raunverulega máli fyrir kaldar vikur fram undan,“ segir Þórdís Kolbrún. R. Gylfadóttir, utanríkisráðherra um níu tonna sendinguna sem fór af stað til Úkraínu frá Keflavíkurflugvelli í dag með kanadískri herflutningavél.

Sendingin er samstarfsverkefni Íslands og Kanada en uppistaðan í henni voru prjónavarningur, hlý föt, skór og sjúkragögn sem ætluð eru varnarsveitum Úkraínu og almenningi.

Er varningurinn annars vegar afrakstur sjálfboðavinnu þúsunda Íslendinga og hins vegar kaup utanríkisráðuneytisins.

Þórdís Kolbrún segir framlagið í anda okkar Íslendinga. „Það er ótrúlega að ánægjulegt að sjá kassa merkta Sendum hlýju, með varningi sem almennir Íslendingar hafa verið að prjóna á heimilum sínum, saman í saumaklúbbum, hjúkrunar- og dvalarrýmum, og svo framvegis, til þess að stuðla að því að fætur og hendur séu nægilega hlý til þess að starfa.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert