Svifryk vel yfir heilsuverndunarmörkum

Umferð í skammdeginu Vesturlandsvegur við Ártúnsbrekku
Umferð í skammdeginu Vesturlandsvegur við Ártúnsbrekku mbl.is/Hari

Styrkur köfnunarefnisdíoíðs og svifryks mældist hár í borginni í dag og mældist klukkutímagildi köfnunarefnisdíoíðs við Grensásveg 196,3 míkrógrömm á rúmmetra kl. 14 í dag. Á sama tíma var klukkutímagildi svifryks 105 míkrógrömm á rúmmetra. Þetta segir í tilkynningu frá borginni.

Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru 75 míkrógrömm á rúmmetra en leyfilegt klukkustundargildi er 200 míkrógrömm á rúmmetra. Sólahringsheilsuverndarmörk fyrir svifryk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra, tæplega helmingurinn af því sem mældist kl. 14.

Stendur svifrykið af malbiksögnum, sóti, jarðvegi, salti og sliti úr …
Stendur svifrykið af malbiksögnum, sóti, jarðvegi, salti og sliti úr hjólbörðum og bílhlutum, sem þyrlast upp þegar þurrt er. mbl.is/Árni Sæberg

„Köfnunarefnisdíoxíðmengun kemur frá útblæstri bifreiða og er að jafnaði mest á morgnanna og í eftirmiðdaginn þegar umferð er þung,“ segir í tilkynningunni. Stendur svifrykið af malbiksögnum, sóti, jarðvegi, salti og sliti úr hjólbörðum og bílhlutum, sem þyrlast upp þegar þurrt er.

Þá er gert ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í kvöld og umtalsverðar líkur á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg auk þess sem hætta er á að gildi svifryks gætu orðið mjög há.

Gert er ráð fyrir svipuðu veðri á morgun og því mögulegt að ástandið verði viðvarandi.

Hvetja til þess að draga úr notkun einkabílsins

„Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins við þessar aðstæður, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna.

Köfnunarefnisdíoxíð og brennisteinsvetni geta valdið ertingu í lungum og öndurvegi.  Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til,“ segir í tilkynningunni.

Hægt er að fylgjast með styrk mengandi efna í rauntíma hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert