Gæsluvarðhaldi hafnað á ný í hryðjuverkamálinu

Landsréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að hafna …
Landsréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að hafna gæsluvarðhaldsbeiðni yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um undirbúning að hryðjuverkum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að hafna gæsluvarðhaldsbeiðni yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um undirbúning að hryðjuverkum hér á landi. Þetta staðfestir Einar Oddur Sigurðs­­son, lögmaður annars sakborningsins.

Þetta er í annað sinn sem að gæsluvarðhaldsbeiðni yfir mönnunum tveimur er hafnað í Landsrétti en í fyrra skiptið var gæsluvarðhaldsúrskurður héraðsdóms felldur úr gildi. Var þá krafist varðhaldsins á þeim grundvelli að mennirnir væru hættulegir.

Varðhaldskraf­an sem Landsréttur hafnaði í dag er byggð á ann­arri laga­grein saka­mála­laga, 2. mgr. 95. gr., sem hljóðar svo:

Einnig má úr­sk­urða sak­born­ing í gæslu­v­arðhald þótt skil­yrði a–d-liðar 1. mgr. séu ekki fyr­ir hendi ef sterk­ur grun­ur leik­ur á að hann hafi framið af­brot sem að lög­um get­ur varðað 10 ára fang­elsi, enda sé brotið þess eðlis að ætla megi varðhald nauðsyn­legt með til­liti til al­manna­hags­muna.

Héraðsdómur Reykjavíkur hafði hafnað þessari beiðni og var sá úrskurður kærður til Landsréttar á mánudaginn. Í dag staðfesti Landsréttur úrskurð héraðsdóms.

Embættið hef­ur þegar ákært menn­ina vegna máls­ins, en dag­setn­ing á þing­fest­ingu máls­ins ligg­ur ekki enn fyr­ir að sögn Karls Inga Vilbergssonar, saksóknara hjá embætti héraðssaksóknara. Mönnunum var sleppt úr haldi þriðjudaginn 13. desember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert