Hurðaskellir og Skjóða í Grýluhelli

Jólamóðir, ný íslensk jóla- og ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna, frumsýnd …
Jólamóðir, ný íslensk jóla- og ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna, frumsýnd í Sambíóunum í Kringlunni í gær. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ný íslensk fjölskyldu- og ævintýramynd, Jólamóðir, var frumsýnd í Sambíóunum í Kringlunni í gær. Eins og við var að búast mættu Grýla og Leppalúði á frumsýninguna, ásamt jólasveinunum þrettán og nokkrum tröllabörnum. Gleðin var ríkjandi í hjarta og huga bíógesta.

Jólamóðir er tekin upp í Grýluhelli og segir frá sögu þessarar jólafjölskyldu sem landsmenn hafa alist upp við gegnum aldirnar. Í aðalhlutverki eru systkinin Hurðaskellir og Skjóða en í myndinni koma fyrir hátt í 70 aðrir íbúar Grýluhellis.

Leikstjóri myndarinnar er Jakob Hákonarson og handrit skrifaði Anna Bergljót Thorarensen, sem einnig leikur í myndinni. Aðrir helstu leikarar eru Andrea Ösp Karls- dóttir, Gríma Kristjánsdóttir, Huld Óskarsdóttir, Sigsteinn Sigurbergsson og Stefán Benedikt Vilhelmsson.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert