Sigríður Soffía hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin

Soffía Sigríður Níelsdóttir ásamt Hr. Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, …
Soffía Sigríður Níelsdóttir ásamt Hr. Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, og dómnefnd Íslensku bjartsýnisverðlaunanna þeim Magnúsi Geir Þórðarsyni, Þórunni Sigurðardóttur, Sif Gunnarsdóttur og Rannveigu Rist. Ljósmynd/Aðsend

Sigríður Soffía Níelsdóttir, danshöfundur, hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2022 sem afhent voru við hátíðlega athöfn á Bessastöðum fyrr í dag. Bjartsýnisverðlaunin eru menningarverðlaun sem hafa verið afhent árlega frá árinu 1981.

Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin, sem eru áletraður gripur úr áli frá ISAL í Straumsvík og ein og hálf milljón króna í verðlaunafé. Í tilkynningu ISAL álversins í Straumsvík segir að álverið hafi verið bakhjarl verðlaunanna frá árinu 2000.

Víðförull dansari

Sigríður Soffía útskrifaðist með BA-gráðu frá samtímadansbraut Listaháskóla Íslands árið 2009. En hún var við skiptinámi í einum fremsta sirkusskóla Evrópu, École Superior des Arts de Cirque í Brussel.

Hún dansaði með Shalala-flokki Ernu Ómarsdóttur frá 2009-2014. Sigríður Soffía hefur unnið bæði sem dansari og danshöfundur í fjölmörgum uppfærslum, bæði hérlendis sem erlendis. Hún útskrifaðist með MBA-gráðu frá HR 2021 og rekur nýsköpunarfyrirtækið Eldblóm. 

Verk hennar, Svartar fjaðrir, opnaði 29. Listahátíð Reykjavíkur á Stóra sviði Þjóðleikhússins í maí 2015. Svartar fjaðrir hlaut þrjár tilnefningar til Grímunnar; Sproti ársins, Búningahönnuður ársins og Tónlist ársins. 

Hélt flugeldasýningu í Barcelona

Sigríður Soffía er einna þekktust fyrir flugeldasýningar sínar á Menningarnótt Reykjavíkur en árið 2013 hlaut hún Menningarverðlaun DV fyrir Elda, sem var fyrsta flugeldaverkið hennar. Í framhaldi var henni boðið að gera opnunarflugeldasýningu La Mercé, borgarhátíðar Barcelona, þar sem flugeldasýningu hennar, Northern Nights, var skotið upp fyrir augum 2 miljóna manna frá Barceloneta-ströndinni. 

Í umsögn dómnefndar segir að Sigríður sé sannur fulltrúi listamanna sem vinna þvert á lönd og viðföng og bera verk hennar vitni um öflugan sköpunarkraft þar sem sífellt er leitað á ný viðmið og ókunnar lendur.

Í dómnefnd Íslensku bjartsýnisverðlaunanna eru Þórunn Sigurðardóttir, Magnús Geir Þórðarson, Sif Gunnarsdóttir og Rannveig Rist.

Bjartsýnisverðlaunin hafa verið afhent árlega frá árinu 1981.
Bjartsýnisverðlaunin hafa verið afhent árlega frá árinu 1981. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert