Rúta út af veginum vestan við Þrengslaveg

Rútan fór út af veginum við Draugahlíðabrekku vestan við Þrengslavegamót.
Rútan fór út af veginum við Draugahlíðabrekku vestan við Þrengslavegamót. Skjáskot/Vegagerðin

Stór rúta fór út af hringveginum rétt vestan við Þrengslaveg nú fyrir skömmu. Sést rútan á vefmyndavél Vegagerðarinnar sem merkt er Draugahlíðabrekka vestur.

Eins og sjá má á myndinni hefur rútan skautað út af en haldist á öllum hjólum. 

Uppfært 12:45

Hvorki Neyðarlínunni né slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu hefur borist tilkynning um óhappið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert